Fotbolti.net
29.09.13 - 12:05
Hafliði Breiðfjörð

Þórður Jensson tekur við kvennaliði FH (Staðfest)

Þórður er hér hægra megin á myndinni  ásamt Gunnari Borgþórssyni þegar þeir voru með Val.

Þórður er hér hægra megin á myndinni ásamt Gunnari Borgþórssyni þegar þeir voru með Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Þórður Jensson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs FH en þetta var tilkynnt á lokfahófi félagsins í gærkvöldi.
Þórður tekur við starfinu af Guðrúnu Jónu Kristjánsdóttur sem hætti með liðið eftir tímabilið.

Þórður tók við 2. flokki kvenna hjá FH síðasta haust og undir hans stjórn endaði liðið í 2. sæti í deildinni.

Þórður var áður aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki Vals, fyrst hjá Frey Alexanderssyni og svo hjá Gunnari Borgþórssyni en hafði á undan því verið íþróttafulltrúi þar og formaður kvennaráðs.

Þórður er frá Ísafirði og sem leikmaður lék hann með heimaliði sínu BÍ auk þess sem hann lék á ferli sínum með HK, Leikni og Val við góðan orðstýr.

FH endaði í 7. sæti Pepsi-deildar kvenna í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.