Rúnar Páll: Heilt yfir var tímabilið mjög gott
Auglýsing

Stjörnumenn munu fagna bikartitlinum í kvöld

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var svekktur eftir 1-0 tap sinna manna gegn FH í lokaumferð Pepsi-deildar karla á Samsung vellinum í dag.
<i>„Það er hundleiðinlegt að tapa en þetta var ágætis leikur. Við fengum fullt af ágætis upphlaupum en gefum þeim marki í upphafi leiks."</i> sagði Rúnar eftir leik.
Stjörnumenn hafa verið í harðri baráttu við Val og Breiðablik í sumar um titilinn en enda tímabilið í þriðja sæti deildarinnar ásamt því að vinna Mjólkurbikarinn. Rúnar er heilt yfir ánægður með tímabil sinna manna.

„Ég vil bara byrja á að óska Valsmönnum til hamingju með titilinn. Við veittum þeim harða samkeppni en þeir eiga þetta svo sannarlega skilið. Þetta er búið að vera mjög gott tímabil hjá okkur. Við settum okkur markmið að berjast um titilinn til loka sem að við gerðum og að vinna bikar sem að við gerðum. Heilt yfir var tímabilið bara mjög gott hjá okkur."
Rúnar sér ekki fyrir sér miklar breytingar á leikmannahópi liðsins og ætlar sér að halda áfram sem stjóri liðsins.
„Við munum vonandi halda öllum þessum leikmönnum sem eru fyrir og munum svo kannski styrkja þetta með 2-3 leikmönnum. Ég verð áfram stjóri Stjörnunnar." sagði Rúnar Páll að lokum.