Fotbolti.net
29.10.24 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Stór fjárfesting Neymar ýtir undir sögusagnir

Neymar.

Neymar.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski fótboltamaðurinn Neymar festi nýverið kaup á glæsilegu húsi í Flórída í Bandaríkjunum.

Þessi fjárfesting fótboltamannsins hefur ýtt undir sögusagnir um að hann og Lionel Messi muni aftur spila saman. Messi er í dag leikmaður Inter Miami í Flórída.
Neymar og Messi spiluðu saman hjá Barcelona og eru mjög góðir vinir.

Neymar er í dag á mála hjá Al Hilal í Sádi-Arabíu en samningur hans þar endar sumarið 2025. Ólíklegt þykir að hann muni endurnýja og gæti hann þá farið til Bandaríkjanna til að spila með Messi.

Húsið sem Neymar keypti á Flórída kostar 26 milljónir dollara eða 3,7 milljarða íslenskra króna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.