Um helgina fóru fram nokkrir æfingaleikir. Að minnsta kost i tvö lið í efstu deild spiluðu æfingaleiki en það voru ÍA og Leiknir.
ÍA tapaði 1-4 gegn Selfossi á Akranesi. Ingvi Rafn, Breki Baxter, Sigurður Óli og Aron Fannar skoruðu mörk Selfyssinga. Hlynur Sævar Jónsson skoraði mark Skagamanna.
Leiknir gerði 3-3 jafntefli gegn Fjölni. Þeir Andi Hoti, Dagur Austmann Hilmarsson og Daníel Finns Matthíasson skoruðu mörk Leiknis. Árni Steinn Sigursteinsson, Dagur Ingi Axelsson og Guðmundur Karl Guðmundsson skoruðu mörk Fjölnis

Þróttur vann þá 2-0 sigur gegn Fram í síðustu viku. Dylan Chiazor og Hinrik Harðarson skoruðu mörkin.
Þróttur lék aftur um helgina, þá gegn Vestra, og vann 3-0 sigur. Hinrik Harðarson, Róbert Orri Ragnarsson og Emil Skúli Einarsson skoruðu mörkin í leiknum sem fram fór á Akranesi.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir