
Real Betis framlengir við Isco (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Isco hefur framlengt samning sinn við Real Betis til ársins 2027.
Isco gekk til liðs við Betis síðasta sumar og gerði samning út tímabilið en hefur nú framlengt hann.
Manuel Pellegrini er stjóri Betis en þeir unnu saman á sínum tíma hjá Malaga þar sem hann náði athygli Real Madrid sem nældi í hann árið 2013.
Þessi 31 árs gamli miðjumaður vann spænsku deildina þrisvar og Meistaradeildina fimm sinnum með Real Madrid áður en hann yfirgaf liðið árið 2022.
Hann gekk til liðs við Sevilla í kjölfarið og gerði tveggja ára samning en samningnum var rift aðeins hálfu ári síðar. Hann var samningslaus allt þar til hann og Pellegrini sameinuðust á ný í sumar.





