Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   fim 30. janúar 2020 10:31
Elvar Geir Magnússon
Gonzalo Villar til Roma (Staðfest)
Villar fær treyju númer 14.
Villar fær treyju númer 14.
Mynd: Roma
Roma hefur keypt Gonzalo Villar, 21 árs miðjumann, frá Elche.

Hann er keyptur á fjórar milljónir evra og hefur skrifað undir samning til sumarsins 2024.

„Ég er að fara í frábært félag og gæti ekki verið ánægðari. Þetta er mikil áskorun fyrir mig og ég get ekki beðið eftir því að sýna hvað ég get," segir Villar.

Guido Fienga, framkvæmdastjóri Roma, telur að þessi spænski U21 landsliðsmaður smellpassi í lið Paulo Fonseca.

„Það er mikil ánægja með að fá Gonzalo. Hann er einmitt sú týpa af miðjumanni sem við vildum bæta við. Hann er ungur, hæfileikaríkur og hefur mikinn metnað," segir Fienga.

Roma er í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar.




Athugasemdir
banner
banner
banner