Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 30. janúar 2020 11:59
Elvar Geir Magnússon
Wilder vonast til að landa þremur
Chris Wilder, stjóri Sheffield.
Chris Wilder, stjóri Sheffield.
Mynd: Getty Images
Chris Wilder, stjóri Sheffield United, segist bjartsýnn á að landa þremur nýjum leikmönnum fyrir gluggalok.

Norski miðjumaðurinn Sander Berge hjá Genk er nálægt því að skrifa undir og þá vill Wilder einnig fá varnarmann.

Wilder er að reyna að fá Panagiotis Retsos, varnarmann Bayer Leverkusen.

„Ég vonast til að ganga frá þremur leikmönnum, við erum bjartsýnir á að það takist," segir Wilder.

Hollenski sóknarmaðurinn snöggi Richairo Zivkovic er einnig á blaði en hann er hjá Changchun Yatai í Kína.

Sharp fer ekki
Á fréttamannafundinum í dag sagði Wilder að sóknarmaðurinn reyndi Billy Sharp myndi ekki yfirgefa félagið. Sharp hefur þurft að sætta sig við bekkjarsetu á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner