Anton Fannar framlengir við Ægi - Mijatovic áfram

Anton Fannar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Fannar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Fannar Kjartansson hefur framlengt samning sinn við Ægi til ársins 2026.
Hann er fæddur árið 2024 og gekk til liðs við félagið fyrir síðasta tímabil en hann lék upp alla yngri flokkana hjá Breiðablik.
Hann lék 16 leiki fyrir Ægi þegar liðið féll úr Lengjudeildinni síðasta sumar.
„Við erum mjög ánægð með að Anton Fannar velur að taka áfram slaginn með Ægi og hann mun styrkja liðið mikið í komandi verkefnum. Áfram Ægir," segir í tilkynningu frá félaginu.
Félagið hefur einnig samið við Sladjan Mijatovic sem er 29 ára gamall bakvörður en hann gekk til liðs við félagið fyrir síðasta tímabil en hann spilaði sjö leiki í deildinni.




