Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 30. mars 2021 17:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Györ, Ungverjaland
Líklegt byrjunarlið Íslands gegn Frakklandi: Margar breytingar
Icelandair
Elías í markinu?
Elías í markinu?
Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Alex með bandið?
Alex með bandið?
Mynd: Getty Images
Ísland mætir Frakklandi á morgun í lokakeppni Evrópumótsins. Leikurinn er liður í lokaumferð riðilsins og þurfa bæði lið á sigri að halda.

Frökkum gæti dugað jafntefli ef Danir leggja Rússa. Starfsmaður Fótbolta.net spáir átta breytingum á liði Íslands frá því gegn Dönum á sunnudag.

Fjórir leikmannanna sem byrjuðu á sunnudag standa Davíð Snorra Jónassyni, þjálfara liðsins, ekki til boða. Þeir Jón Dagur Þorsteinsson, Sveinn Aron Guðjohnsen og Willum Þór Willumsson eru farnir til Sviss í A-landsliðið og þá er Ísak Óli Ólafsson meiddur.

Spá fréttaritara er sú að Alex Þór Hauksson, Kolbeinn Birgir Finnsson og Mikael Neville Anderson haldi sæti sínu í liðinu. Hörður Ingi Gunnarsson, Ari Leifsson og Stefán Teitur Þórðarson taka sér sæti á bekknum.

Í spánni koma þeir Andri Fannar Baldursson, Brynjólfur Andersen Willumsson, Elías Rafn Ólafsson, Finnur Tómas Pálmason, Kolbeinn Þórðarson, Róbert Orri Þorkelsson, Valdimar Þór Ingimundarson og Valgeir Lunddal Friðriksson inn í liðið.

Ef spáin rætist þá eru allar líkur á því að Alex Þór Hauksson beri fyrirliðaband Íslands í leiknum. Þetta er auðvitað allt til gamans gert, sjálft byrjunarliðið verður tilkynnt rétt rúmlega hálf þrjú á morgun.


(Varamenn: Hákon Rafn Valdimarsson, Patrik Sigurður Gunnarsson, Ari Leifsson, Bjarki Steinn Bjarkason, Hörður Ingi Gunnarsson, Stefán Teitur Þórðarson og Þórir Jóhann Helgason)
Athugasemdir
banner
banner
banner