Fotbolti.net
30.03.21 - 09:00
Magnús Már Einarsson

RB Leipzig segir Konate ekki á leið til Liverpool

Ibrahima Konate

Ibrahima Konate

Canon

Mynd: Getty Images

Markus Krosche, yfirmaður íþróttamála hjá RB Leipzig, hefur blásið á fréttir þess efnis að miðvörðurinn Ibrahima Konate sé á leið til Liverpool í sumar.

The Athletic sagði frá því í gær að Liverpool sé langt komið með að ganga frá kaupum á Konate en Krosche neitar þessu.
„Ég held að þetta sé ekki möguleiki fyrir Ibu. Hann er með langan samning við okkur og hann veit hvað við erum fyrir hann og hvað hann er fyrir okkur," sagði Krosche.

„Hann var óheppinn í fyrra því hann lenti í langtíma meiðslum en á þessu ári hefur hann vaxið vel og hann er mjög mikilvægur leikmaður sem er með mikið af hæfileikum."

„Við viljum láta hann vaxa ennþá meira, við spilum í Evrópukeppni og erum með mjög gott lið svo ég sé ekki ástæðu fyrir hann til að fara."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.