Guðni Bergs: Alinn upp í þessum belgíska skóla
Auglýsing

Guðni Bergsson, formaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Þór Viðarsson.

Mynd: Kristján Bernburg

Guðni Bergsson, formaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við höfum fengið mjög góðan starfsmann til okkar," sagði Guðni Bergsson í samtali við Fótbolta.net í dag.
Það er loksins búið að ráða yfirmann knattspyrnumála hjá KSÍ. Arnar Þór Viðarsson, sem er einnig U21 landsliðsþjálfari, var ráðinn í starfið.

Arnar lék 52 landsleiki fyrir A-landslið Ísland. Á leikmannaferlinum spilaði hann lengi í Belgíu og undanfarin ár hefur hann þjálfað hjá Cercle Brugge og Lokeren í Belgíu.
„Hann er með mikla reynslu, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann er lengi búinn að starfa í Belgíu og það er áhugavert að fá einhvern sem kemur utan frá, þó Íslendingur sé. Ég held að hann muni bæta við mjög gott þjálfarastarfslið sem við erum með."
„Hann er alinn upp í þessum belgíska skóla og það er jákvætt. Í bland við íslensku hugviti, baráttuanda, samstöðu og svo framvegis. Þetta er teymisvinna og hún er mikilvæg."
Arnar verður búsettur hérna á Íslandi.
„Hann verður lengst um hér á landi. Hann er að vísu með fjölskyldu í Belgíu en verður búsettur hér."
Arnar mun sinna mest uppbyggingastarfi yngri landsliða út í aðildarfélögin. En verður einnig til taks fyrir A-landsliðþjálfara ef þarf á að halda. Ef þarf að ráða í stöður mun Arnar koma að því.
„Það er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að passa upp á það að miðla þessari þekkingu sem við höfum og reyna að bæta hana, bæði hjá félögunum og hjá KSÍ."
„Það eru ýmis svið sem við getum rýnt frekar í, eins og næringafræði, hugarfarsþjálfun og alls konar atriði í uppbygingu knattspyrnumanna. Þá er hugmynd að láta þá vitneskju vera aðgengilega fyrir aðildarfélögin. Við erum tilbúin að þjóna aðildarfélögunum og byggja upp gott knattspyrnufólk."
Viðtalið er í heild sinni í spilaranum hér að ofan.