Spænski bakvörðurinn Dani Carvajal mun ekki spila meira með Real Madrid á tímabilinu eftir að hafa orðið fyrr enn einum meiðslunum.
Carvajal er 29 ára gamall og hefur meiðst á nánast hverju tímabili frá komu sinni til Real Madrid fyrir átta árum.
Þetta þýðir að Carvajal missir af seinni undanúrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Chelsea og mikilvægum leikjum í spænsku toppbaráttunni, gegn Sevilla meðal annars.
Real Madrid er í öðru sæti spænsku deildarinnar, tveimur stigum eftir nágrönnum sínum í Atletico þegar aðeins fimm umferðir eru eftir.
Carvajal á 294 leiki að baki fyrir Real og hefur unnið alla mögulega titla með félaginu.
Athugasemdir