Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 30. apríl 2021 19:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimir vildi ekki staðfesta kaup á Guðmundi Andra
Andri á leið á Hlíðarenda?
Andri á leið á Hlíðarenda?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Benediktsson spurði Heimi Guðjónsson, þjálfara Vals, hvort hann gæti staðfest að Guðmundur Andri Tryggvason yrði leikmaður Vals. Gummi Ben stýrir upphitun fyrir leik Vals og ÍA sem hefst klukkan 20:00. Sá leikur er opnunarleikur Pepsi Max-deildarinnar.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu.

Heimir svaraði því neitandi og sagði að síðast þegar hann vissi var Guðmundur Andri leikmaður Start þar sem Jóhannes Harðarson er þjálfari.

Í dag fóru af stað sögusagnir um að Andri, eins og hann er kallaður, væri á leið á Hlíðarenda.

Hann var frá allt síðasta tímabil þegar Start féll úr efstu deild í Noregi. Andri lék stórt hlutverk með Víkingi sumarið 2019.

Það verður spennandi að fylgjast með þrónina á þessu máli en alls ekki ólíklegt að Andri verði orðinn leikmaður Vals á næstu dögum.


Athugasemdir
banner
banner
banner