Kjartan Henry: Ég er extra pirraður og það vita flestir útaf hverju það er
Auglýsing

Kjartan Henry Finnbogason fagnar markinu sínu í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kjartan Henry Finnbogason, framherji KR, snéri aftur á völlinn með liðinu í 2-1 tapinu gegn Val á Origo-vellinum í kvöld en það var margt umdeilt sem átti sér stað í leiknum.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 1 KR
Kjartan kom KR-ingum yfir á 18. mínútu áður en Valur jafnaði undir lok fyrri hálfleiksins með marki frá Patrick Pederson. Þegar um það bil tuttugu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma skoraði Jesper Juelsgård úr aukaspyrnu fyrir Val en aðdragandinn á því marki var umdeildur.
„Jájá, extra pirraður og það vita flestir útaf hverju það er. Við erum að koma hérna á erfiðan útivöll erum að spila vel og komumst yfir og við droppuðum til baka og það var vandamál hjá okkur í fyrra að við skoruðum og byrjuðum leikina vel og ætlum síðan að fara að halda einhverju en þeir skora á draumatíma og frábær mark hjá Patrick," sagði Kjartan við Fótbolta.net.
Helgi Mikael Jónasson dæmdi leikinn en án þess að vilja tala eitthvað sérstaklega um slaka dómgæslu þá fannst framherjanum línan óskýr.
„Mér fannst allt í einu annars ágætur dómari leiksins að fara að leyfa einhverja hluti og láta leikinn halda áfram en gefur svo soft aukaspyrnu fyrir utan teig og aftur óverjandi aukaspyrna. Frábær aukaspyrna og við töpum leiknum á þessu. Þetta er ótrúlega svekkjandi en þýðir ekkert að vorkenna sjálfum sér og sem betur fer eru extra margir leikir í ár."
„Mér finnst dómarinn gera þetta mjög vel. Hann er að dæma erfiðan leik og gerir sitt besta og er alls ekki að kenna dómaranum um eitt eða neitt svo það sé á hreinu en línan er svolítið óskýr og svo í eitt af fáum skiptum sem ég er ekki að stríða markverðinum og hlaupa í veg fyrir hann og ég sé að koma í fjögurra metra fjarlægð og hann neglir mig niður og það er dæmd aukaspyrna á mig. En ég er var ekkert að pæla í því inni á vellinum og svo fæ ég gult spjald fyrir að tækla boltann. Ég spurði hann af hverju og hann sagði ef þú hefðir ekki farið í boltann þá hefðiru meitt manninn. Við erum að mætast hérna KR og Valur og vilja allir hafa smá stemningu, þetta var smá stemningstækling. Ég þarf að passa mig allan leikinn," sagði hann ennfremur.
Pedersen fékk aukaspyrnu fyrir utan teig KR-inga eftir að brotið var á Elmari Bjarnasyni í aðdragandanum en Kjartan skildi ekki alveg dómgæsluna í því atviki.
„Nei, Theodór Elmar var með boltann og hann fer í bakið á honum og ég veit ekki af hverju hann ætti að láta sig detta. Svo er farið fram og þeir fá svipaða aukaspyrnu fyrir utan teig," sagði Kjartan en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.