Fotbolti.net
30.05.26 - 17:02
Brynjar Ingi Erluson

Átti PSG að fá vítaspyrnu?

Bukayo Saka var heppinn að fá ekki á sig víti

Bukayo Saka var heppinn að fá ekki á sig víti

Canon

Mynd: EPA

Englandsmeistarar Arsenal leiða gegn PSG, 1-0, í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þegar flautað hefur verið til loka fyrri hálfleiks, en átti PSG að fá vítaspyrnu nokkrum mínútum eftir mark Kai Havertz?
Sjáðu markið: Havertz nýtti sér slaka hreinsun Marquinhos
TENGT EFNI

Sjáðu markið: Havertz nýtti sér slaka hreinsun Marquinhos

Havertz skoraði á 6. mínútu leiksins er Marquinhos hreinsaði boltanum í Leandro Trossard og til Havertz sem keyrði upp vinstri vænginn og inn í teiginn áður en hann hamraði boltanum í þaknetið.

Átta mínútum síðar gerðu leikmenn PSG tilkall til að fá vítaspyrnu er Bukayo Saka handlék boltann í tvígang í teignum.

Saka reyndi að hreinsa boltann úr miðjum teignum, en hitti ekki boltann sem fór síðan í handakrikann á honum og þaðan í höndina á honum.

„Já boltinn fer klárlega í hægri höndina á honum og líklega í vinstri höndina líka,“ sagði Ally McCoist í lýsingunni á TNT Sports.

Voðalega klaufalegt allt saman hjá Saka, en ekkert var dæmt og áfram með smjörið. Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan.

Sjáðu atvikið hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.