Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 30. maí 2026 17:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Dembele jafnaði metin úr vítaspyrnu
Mynd: EPA
Paris Saint-Germain hefur jafnað metin gegn Arsenal í úrslitum Meistaradeildarinnar. Ousmane Dembele skoraði markið úr vítaspyrnu eftir rúmlega klukkutíma leik.

Kai Havertz kom Arsenal yfir snemma leiks. PSG var mun meira með boltann í kjölfarið en Arsenal stóð vaktina mjög vel í vörninni í fyrri hálfleik.

Khvicha Kvaratskhelia gerði mjög vel og kom sér inn á teiginn en Cristhian Mosquera braut á honum og vítaspyrna dæmd.

Dembele steig á punktinn, sendi David Raya í rangt horn og skoraði. Þegar þetta er skrifað er staðan enn 1-1 og um 20 mínútur til loka venjulegs leiktíma.

Sjáðu markið hér

Slapp
banner
banner