Enska B-deildarfélagið Stoke City hefur fest kaup á enska vængmanninum Liam McCarron frá Leeds United.
McCarron er 19 ára gamall og uppalinn hjá Carlisle United en var keyptur til Leeds árið 2019.
Hann var í hóp í ellefu leikjum Leeds í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og kom inná í einum þeirra, en það var í 4-1 tapi gegn Arsenal á Elland Road.
Stoke City hefur verið í viðræðum við Leeds síðustu daga um kaup á leikmanninum og eru þau nú staðfest en kaupverðið er ekki gefið upp.
McCarron gerði þriggja ára samning við Stoke sem hafnaði í 14. sæti ensku B-deildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir