Franska stórveldið Paris Saint-Germain er búið að staðfesta komu portúgalska miðjumannsins Vitinha.
PSG bauð 40 milljónir evra fyrir Vitinha og virkjaði þannig söluákvæði í samningi hans við Porto.
Vitinha er 22 ára miðjumaður og landsliðsmaður Portúgal þar sem hann á þrjá leiki að baki fyrir A-liðið eftir að hafa verið algjör lykilmaður í yngri landsliðunum.
Hjá PSG mun Vitinha berjast við menn á borð við Leandro Paredes og Ander Herrera um byrjunarliðssæti og gæti myndað afar öflugt miðjupar ásamt Ítalanum Marco Verratti.
👋 𝐵𝑒𝑚-𝑣𝑖𝑛𝑑𝑜, @vitinha!
— Paris Saint-Germain (@PSG_inside) June 30, 2022
🔴 #WelcomeVitinha 🔵 pic.twitter.com/EL0xSitK5k
Athugasemdir