Fotbolti.net
30.06.26 - 10:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Koeman: Ekki rétti tíminn til að tala um mína framtíð

Koeman: Ekki rétti tíminn til að tala um mína framtíð
Canon

Mynd: EPA

Ronald Koeman, landsliðsþjálfari Hollands, var skiljanlega svekktur eftir leikinn gegn Marokkó í 32-liða úrslitum HM í nótt.

Holland komst yfir með marki frá Cody Gakpo í seinni hálfleik en Issa Diop jafnaði fyrir Marokkó með marki snemma í uppbótartíma.

Gripið var til framlengingar og svo vítaspyrnukeppni og þar hafði Marokkó betur. Því er Holland úr leik í mótinu.
Sjáðu HM mörkin: Marokkó sendi Holland heim eftir vító
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Marokkó sendi Holland heim eftir vító

Koeman var spurður út í framtíð sína eftir leikinn.

„Framtíðin kemur, hún byrjar á morgun. Er hún í huga mér núna. Ég hef engar hugsanir um hana núna. En mér líður eins og þetta sé ekki rétta augnablikið að ræða um hana," sagði Koeman við hollenska miðilinn NOS.
Koeman: Ekki rétti tíminn til að tala um mína framtíð
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.