Fotbolti.net
30.07.13 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Conor Sellars í Hött (Staðfest)

Conor Sellars í Hött (Staðfest)
Canon

Mynd: Netið

Höttur úr 2. deild hefur fengið enska kantmanninn Conor Sellars í sínar raðir.

Conor er sonur Scott Sellars sem lék á árum áður í efstu deild á Englandi með Newcastle, Leeds, Blackburn og Bolton.

Scott spilaði með Henrik Bödker þjálfara hjá Stjörnunni í Danmörku á sínum tíma og Conor kemur til Íslands fyrir tilstuðlan Danans.
Hinn 21 ára gamli Conor var í unglingaliði Middlesbrough þar sem hann spilaði meðal annars með Gary Martin framherja KR.

Síðan þá hefur hann komið víða við og meðal annars spilað með varaliðum Manchester City, Benfica, Derby og Sheffield Wednesday,

Höttur er í neðsta sæti í 2. deildinni en næsti leikur liðsins er gegn Njarðvík annað kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.