30.07.13 - 16:21
Magnús Már Einarsson
Endre Ove Brenne í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Keflavík hefur fengið norska varnarmannin Endre Ove Brenne í sínar raðir.
Ove Brenne þekkir til á Íslandi en hann hjálpaði Selfyssingum að komast upp úr 1. deildinni árið 2011 og spilaði með liðinu í Pepsi-deildinni í fyrra.

Hinn 25 ára gamli Ove Brenne spilaði tuttugu leiki í Pepsi-deildinni í fyrra.
Keflvíkingar eru að vinna í að styrkja leikmannahóp sinn en Arnar Darri Pétursson markvörður Stjörnunnar gæti verið á leið til félagsins eins og kom fram á Fótbolta.net.
Keflavík er sem stendur í botnsæti Pepsi-deildarinnar með 7 stig en næsti leikur liðsins er gegn Víkingi Ólafsvík í næstu viku.