Fotbolti.net
30.07.13 - 12:10
Hafliði Breiðfjörð

Halldór Hilmisson í Gróttu (Staðfest)

Halldór Hilmisson í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grótta hefur fengið liðsstyrk í 2. deildinni en félagið hefur krækt í miðjumanninn reynda Halldór Hilmisson.

Halldór ákvað að yfirgefa herbúðir Þróttar á dögunum eftir þjálfaraskipti hjá félaginu.
Hann hefur nú ákveðið að skipta yfir í Gróttu og leika með liðinu út tímabilið.

Hinn 36 ára gamli Halldór hefur leikið með Þrótti frá 2002 að undanskildum árunum 2007-2009 þegar hann var í Fylki.

Halldór gæti leikið sinn fyrsta leik með Gróttu annað kvöld þegar liðið fær Reyni Sandgerði í heimsókn.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Grótta fær frá Þrótti í mánuðinum en áður höfðu Andri Gíslason, Erlingur Jack Guðmunsson og Guðjón Gunnarsson farið sömu leið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.