Fotbolti.net
30.07.13 - 22:52
Magnús Már Einarsson

Sigurður Eyberg í Hamar (Staðfest)

Sigurður Eyberg í Hamar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Hamar hefur fengið hægri bakvörðinn Sigurð Eyberg Guðlaugsson til liðs við sig en þetta kemur fram á sunnlenska.is í kvöld.

Sigurður Eyberg yfirgaf herbúðir Selfyssinga í síðustu viku eftir að hafa leikið með félaginu allan sinn feril.
Þessi 23 ára gamli leikmaður gæti leikið sinn fyrsta leik með Hamar þegar liðið heimsækir HK í 2. deildinni annað kvöld.

Sigurður hefur skorað eitt mark í sjö leikjum í sumar en samtals hefur hann skorað tvö mörk í 92 leikjum með Selfyssingum.

Sigurður er ekki eini leikmaðurinn sem Hvergerðingar hafa fengið til sín í glugganum því áður höfðu þeir fengið lánaða þrjá leikmenn frá Tindastóli, þá Arnar Skúla Atlason, Árna Einar Adolfsson og Benjamín Gunnlaugarson.

Þá gekk fyrrum leikmaður liðsins, Marteinn Svavarsson,, til liðs við Hamar frá Vatnaliljunum og Tómas Kjartansson flutti sig ofar í Ölfusið en hann kom til Hamars frá Ægi í Þorlákshöfn.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.