Fotbolti.net
30.07.13 - 19:14
Brynjar Ingi Erluson

Valur lánar Hlíf í ÍBV og Svönu Rún í Selfoss (Staðfest)

Hlíf er komin aftur í ÍBV

Hlíf er komin aftur í ÍBV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Valur í Pepsi-deild kvenna hefur lánað tvo leikmenn frá félaginu. Hlíf Hauksdóttir er komin aftur til ÍBV og Svana Rún Hermannsdóttir er farin í Selfoss.
Hlíf, sem er 24 ára gömul, hefur lítið fengið að spila með Val í sumar, en hún kom til félagsins frá einmitt ÍBV þar sem hún lék frá árinu 2009.

Hún er nú komin á lán til ÍBV, en hún er einmitt í byrjunarliðinu gegn Stjörnunni, enn sá leikur er í gangi núna.

Svana Rún, sem er 20 ára gömul, hefur spilað fimm leiki í sumar með Val, aðallega sem varamaður, en hún mun leika síðari hluta tímabilsins með Selfyssingum og er hún í byrjunarliðinu gegn Þrótti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.