Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 30. júlí 2022 22:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enginn skorað meira en Salah gegn City
Mynd: EPA

Mohamed Salah skoraði eitt og lagði upp annað í 3-1 sigri Liverpool á Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn í kvöld.


Hann hefur nú komið beint að þrettán mörkum í búningi Liverpool gegn City, átta mörk og fimm stoðsendingar.

Enginn hefur skorað jafn mörg mörk gegn City síðan Salah gekk til liðs við Liverpool fyrir tímabilið 2017/18.

Darwin Nunez kom inn á snemma í síðari hálfleik í sínum fyrsta keppnisleik fyrir liðið. Hann skoraði þriðja mark liðsins. Hann er fjórði leikmaðurinn á eftir Sadio Mane, Mo Salah og Van Dijk til að skora í sínum fyrsta leik fyrir Liverpool undir stjórn Klopp.



Athugasemdir
banner
banner
banner