Fotbolti.net
30.07.23 - 23:11
Brynjar Ingi Erluson

Grétar Snær í FH (Staðfest) - Má spila á morgun

Grétar Snær í FH (Staðfest) - Má spila á morgun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Grétar Snær Gunnarsson er genginn til liðs við FH frá KR.
KR staðfesti í dag brottför Grétars og kom þar fram að félagið væri búið að ná samkomulagi við FH um kaup og sölu á honum.

Hann hefur nú fengið félagaskipti sín í gegn og getur spilað með FH á morgun er liðið mætir Keflavík á HS Orkuvellinum.

Skipti Grétars töfðust vegna félagaskiptabanns FH-inga en nú er allt frágengið.

Grétar þekkir vel til hjá FH en hann spilaði með yngri flokkum félagsins og á þá tvo leiki í deild- og bikar fyrir meistarflokk FH en báðir leikirnir komu árið 2016.

Áður spilaði hann fyrir Fjölni, HK og Víking Ólafsvík. Hann á samtals 59 leiki og 2 mörk í efstu deild. Þetta er fyrsti leikmaðurinn sem FH fær í glugganum en þeir Viðar Ari Jónsson og Arnór Borg Guðjohnsen eru einnig á leið í Hafnarfjörðinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.