Höttur/Huginn fær fjóra frá Spyrni (Staðfest)


Mynd: Facebook


Mynd: Facebook
Höttur/Huginn hefur fengið liðstyrk fyrir átökin sem framundan eru í 2. deild.
Þeir Jónas Pétur Gunnlaugsson, Heiðar Logi Jónsson, Eyþór Magnússon og Þór Albertsson ganga til liðs við félagið frá Spyrni sem spilar í 5. deild.
Eyþór og Þór eru báðir komnir með leikheimild og spiluðu með liðinu í 4-1 sigri á KFG í gær. Jónas klárar leik með Spyrni í dag en liðið mætir Berkserkjum/Mídas og svo skiptir hann yfir. Heiðar Logi tekur út leikbann um helgina.
„Þessir fjórir hafa allir staðið sig mjög vel í sumar og tekið miklum framförum. Þeir koma nú inn í hópinn hjá HH og ég hef fulla trú á því að þeir eigi allir eftir að láta til sín taka og fá mikilvæga reynslu sem mun nýtast þeim á næstu árum. Virkilega ánægjulegt að sjá Spyrnis verkefnið skila þessum fjórum inn í hóp HH reynslunni ríkari og sem betri leikmönnum en áður en tímabilið hófst og sýnir vel mikilvægi þess verkefnis," sagði Brynjar Árnason þjálfari Hattar/Hugins.




