Fotbolti.net
30.07.23 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

James Rodriguez til Sao Paulo (Staðfest)

James Rodriguez til Sao Paulo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

James Rodriguez hefur fundið sér nýtt félag en þessi 32 ára gamli Kólumbíumaður hefur gert tveggja ára samning við Sao Paulo í Brasilíu.

James lék síðast með Olympiakos en samningnum hans var rift í apríl síðastliðnum.

Hann á fínan feril að baki í Evrópu en hann spilaði m.a. með Real Madrid, Bayern og Everton.

James á að baki 90 landsleiki fyrir hönd Kólumbíu og hefur skorað í þeim 26 mörk.

Alexandre Pato fyrrum vonarstjarna Brasilíu leikur með Sao Paulo en hann reyndi fyrir sér hjá AC Milan þar sem hann átti góðan feril en ekkert gekk þegar hann fór á lán til Chelsea árið 2016 þar sem hann lék aðeins tvo leiki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.