Fotbolti.net
30.07.23 - 16:07
Brynjar Ingi Erluson

Saint-Maximin til Al-Ahli (Staðfest)

Saint-Maximin til Al-Ahli (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski vængmaðurinn Allan Saint-Maximin gekk í dag til liðs við Al-Ahli frá Newcastle United.
Al-Ahli greiðir Newcastle um 30 milljónir punda fyrir leikmanninn og verður hann því fjórða stóra nafnið sem félagið fær í sumar á eftir Edouard Mendy, Roberto Firmino og Riyad Mahrez.

Newcastle neyddist til að selja Saint-Maximin til þess að brjóta ekki fjárhagsreglur FFP.

Saint-Maximin, sem er 26 ára gamall, spilaði í fjögur ár með Newcastle og hjálpaði liðinu meðal annars að tryggja sæti í Meistaradeild Evrópu fyrir komandi leiktíð.

Mörg félög í ensku úrvalsdeildinni hafa kallað eftir að Newcastle verði rannsakað fyrir þessi félagaskipti en félögin eru bæði í eigu PIF (ríkissjóðsins í Sádi-Arabíu). Félögin hafa áhyggjur af því að þarna sé verið að blása upp markaðsvirði leikmannsins til að dæla pening inn í Newcastle með lögmætum hætti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.