30.08.13 - 22:07
Ísak Hallmundarson
Christian Eriksen til Tottenham (Staðfest)
-Þriðji leikmaðurinn sem kemur til Tottenham í dag

Christian Erikssen

Mynd: Getty Images

Christian Erikssen

Mynd: Getty Images
Tottenham hefur nú fest kaup á Christian Erikssen uppá 11.5 milljónir punda.
Christian Erikssen er þriðji leikmaðurinn sem gengur til liðs við Tottenham í dag ásamt Erik Lamela og Vlad Chiriches.
Tottenham hefur farið hamförum á leikmannamarkaðinum í sumar en liðið er þegar búið að kaupa Paulinho, Nacer Chadli, Roberto Soldado og Etienne Capoue fyrr í sumar.
Eriksen sem er 21 árs hefur verið lykilmaður í nokkur ár hjá Ajax og liðið var hollenskur meistari á síðasta ári.

Það er ljóst að það verður nokkuð erfitt fyrir Gylfa Sigurðsson að vinna sér inn sæti í byrjunarliði Tottenham þar sem hann þarf að keppa við Erik Lamela, Christian Eriksen og Andros Townsend um stöðuna.