Fotbolti.net
30.08.13 - 22:00
Ísak Hallmundarson

Geoffrey Kondogbia til Monaco (Staðfest)

Geoffrey Kondogbia til Monaco (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Monaco er búið að semja við franska miðvallarleikmanninn Geoffrey Kondogbia.

Kondogbia er einn af bestu ungu miðjumönnum Evrópu en mörg lið hafa verið á eftir honum í sumar.

Hann skrifar undir 5 ára samning við Monaco sem hafa eytt miklum fjárhæðum í sumar. Monaco greyddu upp samning hans við Sevilla en hann kom frá Lens síðastliðið sumar og fór á kostum hjá Sevilla á síðustu leiktíð.
Real Madrid og Arsenal höfðu einnig áhuga á honum og Arsene Wenger stjóri Arsenal er örruglega svekktur yfir að hafa misst af enn einum leikmanninum í sumar.

Monaco hefur eytt miklum fjárhæðum í sumar eftir að þeir komust upp í efstu deild í Frakklandi en meðal leikmanna sem þeir hafa keypt í sumar eru Radamel Falcao frá Atletico Madrid og Joao Moutinho frá Porto.

Monaco á því bjarta framtíð og er á góðri leið með að verða einn stærsti klúbburinn í Evrópu á næstu árum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.