30.08.13 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Kevin-Prince Boateng til Schalke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Schalke hefur keypt Kevin-Prince Boateng frá AC Milan en leikmaðurinn skrifaði undir fjögurra ára samning við þýska félagið.
Boateng skoraði tvívegis í 3-0 sigri AC Milan á PSV Eindhoven í Meistaradeildinni í vikunni.
,,Þeir höfðu fyrst samband fyrir ári en stundum þarftu að bíða lengur eftir tækifærinu,\" sagði Boateng.
Boateng þekkir til í Þýskalandi því hann spilaði með Hertha Berlin á sínum tíma en hálfbróðir hans Jerome Boateng spilar með FC Bayern.
Þessi landsliðsmaður frá Gana hefur einnig leikið með Portsmouth og Tottenham á ferli sínum.

Heimild: Reuters