Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. ágúst 2021 14:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maitland-Niles með skýr skilaboð
Maitland-Niles.
Maitland-Niles.
Mynd: EPA
Ainsley Maitland-Niles birti í dag athyglisverða færslu á samfélagsmiðlinum Instagram.

Maitland-Niles vill komast frá Arsenal og hann fer ekkert leynt með það.

„Það eina sem ég vil er að fara eitthvert þar sem krafta minna er óskað, eitthvert þar sem ég mun spila," skrifaði Maitland-Niles á Instagram.

Hann er orðinn þreyttur á að vera í aukahlutverki hjá Arsenal og vill fara í annað félag.

Félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti á morgun og verður athyglisvert að sjá hvort Maitland-Niles verði kominn í annað félag þegar glugginn lokar, eða ekki. Hann hefur verið orðaður við Everton og eru viðræður á milli félaga núna í gangi.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner