Al Markhiya 0 - 2 Al Arabi
0-1 Aron Einar Gunnarsson
0-2 Abdulaziz Al-Ansari
0-1 Aron Einar Gunnarsson
0-2 Abdulaziz Al-Ansari
Al Arabi er kominn í úrslitaleik Emir-bikarsins í Katar eftir sigur á Al Markhiya í dag. Um er að ræða stærstu bikarkeppni landsins. Heimir Hallgrímsson er þjálfari Al Arabi og Aron Einar Gunnarsson er leikmaður liðsins.
Freyr Alexandersson var í starfsliði Al Arabi í leiknum en hann er að taka við starfi aðstoðarþjálfara liðsins.
Aron Einar var á skotskónum í dag, hann skoraði fyrra mark Al Arabi í 0-2 sigri. Abdulaziz Al-Ansari skoraði seinna mark Al Arabi. Mörkin má sjá hér að neðan.
Þetta var fyrri undanúrslitaviðureignin því á morgun mætast Al Duhail og Al Sadd í hinni viðureigninni.
Fyrir þremur vikum var Al Arabi í bikarúrslitum QSL bikarsins og því er þetta annar bikarúrslitaleikurinn sem liðið kemst í á stuttum tíma. 23 ár eru síðan Al Arabi vann síðast stóran bikar.
GOAL! Gunnarsson gives Al-Arabi the lead! #AmirCup2020pic.twitter.com/Qg81CfIBxI
— Qatar Football Live (@QFootLive) October 30, 2020
It’s over now - the long wait is over!! Al-Arabi have reached the Amir Cup final after 27 YEARS!!
— Qatar Football Live (@QFootLive) October 30, 2020
Now.. can they win their first major title since 1997? The Dream Team’s dreams remain alive #AmirCup2020 pic.twitter.com/A33RWu9LAO
Athugasemdir