Man Utd ætlar að bjóða Calvert-Lewin samning - Al Nassr á eftir Rodrygo - Chelsea fylgist með stöðu Nwaneri
banner
   mið 30. nóvember 2022 09:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Glenn sækir tvær úr ÍBV yfir í Keflavík (Staðfest)
Kvenaboltinn
Madison Wolfbauer er komin í Keflavík.
Madison Wolfbauer er komin í Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur samið við tvo erlenda leikmenn sem koma báðar til félagsins frá ÍBV.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Madison Wolfbauer og Sandra Voitane. Þær fylgja báðar þjálfaranum Jonathan Glenn frá Vestmannaeyjum.

Wolfbauer er 23 ára fjölhæfur miðjumaður sem mun koma til með styrkja miðsvæði Keflavíkur. Madison spilaði með Bowling Green University og var fyrirliði liðsins þegar það tryggði sér MAC meistaratitilinn í NCAA deildinni.

Voitane er landsliðskona frá Lettlandi sem hefur leikið 47 leiki með landsliðinu og skorað í þeim 14 mörk. Þá hefur hún verið fyrirliði liðsins. Með landsliðinu hefur hún tvisvar unnið Baltic Cup. Sandra spilar sem bakvörður en getur einnig leyst fleiri stöður á vellinum.

Þær voru báðar í stóru hlutverki hjá ÍBV á síðustu leiktíð undir stjórn Glenn sem tók við Keflavík á dögunum.

Keflvíkingar höfnuðu í áttunda sæti Bestu deildar kvenna á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner