Fotbolti.net
30.12.23 - 23:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Framkvæmdastjóri Blika: Getur einhver keppt við fasteignafélagið um laun?

Valur fagnar marki gegn Breiðabliki á síðustu leiktíð.

Valur fagnar marki gegn Breiðabliki á síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri Breiðabliks, segir að það sé ekki hægt að keppa við Val varðandi laun í íslenskum fótbolta.
Hann segir þetta á samfélagsmiðlinum X (áður Twitter) í kvöld í kjölfar þeirra tíðinda að Helena Ósk Hálfdánardóttir sé að ganga í raðir Vals frá Breiðabliki.

Það var Orri Rafn Sigurðarson sem sagði frá þeim tíðindum í gærkvöldi og bætti svo við í kjölfarið að hann væri að heyra að ástandið væri ekki gott hjá Breiðablik í kvennaboltanum, að félagið væri ekki að bjóða góða samninga.

Eysteinn svaraði færslu Orra og sagði: „Betra back up? Getur einhver keppt við Fasteignafélagið varðandi laun?"

Valur hefur stundum fengið viðurnefnið „fasteignafélagið" en Valur varð ríkasta félag landsins út af því landssvæði sem það starfar á.

Eysteinn talaði einnig um að verið væri að vinna hlutina af skynsemi í Kópavogi og ítrekaði að það keppti enginn við Val varðandi launakostnað.

Helena Ósk er að koma til baka eftir að hafa slitið krossband fyrir tímabilið í ár. Helena Ósk, sem er 22 ára gömul, gekk í raðir Breiðabilks fyrir tímabilið í fyrra og lék tíu leiki með liðinu í Bestu deildinni. Helena er uppalin í FH en hún hefur einnig spilað leiki með Fylki í efstu deild. Hún er kantmaður sem á að baki 23 leiki fyrir yngri landslið Íslands.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.