Joey Barton, stjóri Fleetwood Town, er ánægður með að hafa fengið íslenska miðjumanninn Ísak Snæ Þorvaldsson í sínar raðir á láni frá Norwich.
Hinn 18 ára gamli Ísak hefur gengið til liðs við Fleetwood á láni út tímabilið en hann hefur staðið sig vel með U23 ára liði Norwich á tímabilinu.
„Ísak er leikmaður sem við höfum fylgst með í þónokkurn tíma og þegar tækifæri bauðst til að fá hann til félagsins þá hoppuðum við á það," sagði Barton.

„Hann er miðjumaður sem er harður í horn að taka og hann mun koma með samkeppni í hópinn okkar."
„Hann hefur hrifið menn með frammistöðu sinni með U23 liði Norwich þrátt fyrir að vera einungis 18 ára og okkur hlakkar til að fá hann í þessu formi inn í hópinn okkar."
Athugasemdir