Barcelona hefur keypt brasilíska miðjumanninn Matheus Fernandes frá Palmeiras í Brasilíu. Barcelona greiðir alls 10 milljónir evra fyrir þennan 21 árs gamla leikmann.
Palmeiras keypti Fernandes frá Botafogo fyrir ári síðan, en honum tókst ekki að hjálpa liðinu að forðast sitt fyrsta fall úr efstu deild í sögunni.
Hann mun ganga í raðir Barcelona næsta sumar og verður hann samningsbundinn til 2025.
Fernandes er varnarsinnaður miðjumaður sem þykir mjög góður í að vinna boltann.
Hann er annar leikmaðurinn sem Barcelona kaupir í dag. Fyrr í dag var Portúgalinn Francisco Trincao keyptur frá Braga. Hann kemur einnig næsta sumar.
Athugasemdir