Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   mán 31. janúar 2022 15:46
Elvar Geir Magnússon
Ndombele til Lyon (Staðfest)
Tanguy Ndombele .
Tanguy Ndombele .
Mynd: Lyon
Tottenham hefur losað sig við Tanguy Ndombele sem var keyptur til félagsins á metfé frá Lyon á 63 milljónir 2019.

Hann er kominn til Lyon í Frakklandi á lánssamningi en Lyon er með möguleika á því að kaupa miðjumanninn sem náði ekki þeim hæðum hjá Spurs sem vonast var eftir.

Hann hefur komið við sögu í 63 deildarleikjum og skorað sex mörk frá komu sinni.

Á tímabilinu hefur hann einungis komið við sögu í níu deildarleikjum og alls sextán leikjum í öllum keppnum.

Lyon getur keypt Ndombele til baka til félagsins fyrir 54 milljónir punda (65 milljónir evra) þremur milljónum meira en félagið seldi hann á fyrir tveimur og hálfu ári.

Í BEINNI - Gluggadagskvaktin

Athugasemdir
banner
banner
banner