Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. janúar 2023 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikur: Liam Daði Jeffs skoraði í sigri gegn Haukum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur 3 - 1 Haukar
0-1
1-1 Ernest Slupski
2-1 Hinrik Harðaron
3-1 Liam Daði Jeffs


Þróttur og Haukar áttust við í æfingaleik í Laugardalnum síðastliðinn laugardag og tóku gestirnir úr Hafnarfirði forystuna snemma leiks.

Heimamenn svöruðu þó fyrir sig og snéru stöðunni við með mörkum frá Ernest Slupski og Hinriki Harðarsyni.

Í síðari hálfleik bætti hinn 16 ára gamli Liam Daði Jeffs, sonur Ian Jeffs aðalþjálfara meistaraflokks, þriðja markinu við og urðu lokatölur 3-1.

Ian Jeffs tók við Þrótti fyrir síðustu leiktíð og fór með liðið beint aftur upp í Lengjudeildina í fyrra.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner