Fotbolti.net
31.03.20 - 20:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guðjón valdi lið skipað þeim bestu sem hann hefur þjálfað á Íslandi

Guðjón valdi lið skipað þeim bestu sem hann hefur þjálfað á Íslandi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Guðjón Þórðarson, fyrrum landsliðsþjálfari og margfaldur Íslandsmeistari, hefur þjálfað marga af bestu leikmönnum Íslandssögunnar. Guðjón var gestur í þættinum Sportið í kvöld á Stöð 2 Sport, Ríkharð Óskar Guðnason stýrði þættinum.

Rikki bað Guðjón um að velja úrvalslið skipað leikmönnum sem Guðjón þjálfaði á Íslandi. Guðjón stillir upp í leikkerfið 4-3-3.
Markvörður: Kristján Finnbogason

Hægri bakvörður: Ólafur Þórðarson
Miðvörður: Luka Kostic
Miðvörður: Ólafur Adolfsson
Vinstri bakvörður: Sigursteinn Gíslason

Miðja: Sigurður Jónsson
Miðja: Þorvaldur Örlygsson
Miðja: Rúnar Kristinsson

Framlína: Þórður Guðjónsson
Framlína: Mihajlo Bibercic
Framlína: Arnar Gunnlaugsson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.