Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 31. mars 2021 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona verða átta-liða úrslitin á EM U21
Danir mæta Þýskalandi.
Danir mæta Þýskalandi.
Mynd: Getty Images
Riðlakeppni á Evrópumóti U21 landsliða kláraðist í dag.

Ísland var á meðal þáttökuþjóða en tapaði öllum þremur leikjum sínum og er úr leik. Það voru fjórir riðlar og komust tvö efstu liðin upp úr hverjum riðli. Danmörk og Frakkland komst upp úr riðli okkar Íslendinga.

Þetta Evrópumót er ekki eins og venjulegt mót í ljósi kórónuveirufaraldursins. Það er tvískipt og verða átta-liða úrslitin spiluð í sumar.

Svona verða átta-liða úrslitin:

Holland - Frakkland
Danmörk - Þýskaland
Spánn - Króatía
Portúgal - Ítalía

Sjá einnig:
EM U21: Ísland lauk leik - Hjörtu Englendinga brotin
Athugasemdir
banner
banner