Fotbolti.net
31.05.13 - 13:52
Magnús Már Einarsson

Liverpool: Suarez er ekki til sölu

Liverpool: Suarez er ekki til sölu
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool segir að framherjinn Luis Suarez sé ekki til sölu. Fyrr í dag lýsti Suarez því yfir að hann vilji fara frá félaginu en hann hefur verið orðaður við Real Madrid undanfarna daga.

Talsmaður Liverpool hefur nú sagt að Suarez hafi ekki talað við félagið um að fara og að Úrúgvæinn sé ekki til sölu.
,,Luis Suarez er ekki til sölu. Hvorki Luis né umboðsmenn hans hafa sagt eitthvað beint við Liverpool um þetta mál,\" sagði talsmaður Liverpool.

,,Félagið heldur áfram að styðja Luis og býst við að hann virði samning sinn. Félagið mun ekki tjá sig meira á þessu stigi málsins.\"

Þessi frábæri leikmaður hefur oft komist í fréttirnar fyrir neikvæða hluti, síðast þegar hann beit Branislav Ivanovic, leikmann Chelsea, og hlaut tíu leikja bann í kjölfarið.

Sjá einnig:
Luis Suarez vill fara frá Liverpool (Staðfest)

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.