Liðin eru nú í óðaönn að undirbúa sig fyrir Íslandsmótið sem hefst í næsta mánuði. Talsvert margir æfingaleikir hafa farið fram, en hér má sjá úrslit úr nokkrum þeirra.
Augnablik, sem þykir til alls líklegt í 3. deild karla í sumar, vann KF fyrir norðan. Þá unnu Vatnaliljur, KÁ og Álafoss sigra eins og sjá má hér að neðan.
KF 0 - 2 Augnablik
Mörk Augnabliks: Brynjar Óli Bjarnason og Haukur Darri Pálsson.
Vatnaliljur 4 - 1 Skallagrímur
Mörk Vatnalilja: Grétar Hrafn Guðnason 2, Jóhann Steinar Sigurðarson og Óðinn Ómarsson.
KÁ 2 -1 ÍH
Mark ÍH: Garðar Leifsson.
Álafoss 4 - 0 KFR
Mörk Álafoss: Aron Elfar Jónsson, Máni Arnarsson, Ísak Máni Viðarsson og Guðbrandur Jóhannesson.
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir