Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 31. maí 2020 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eins og fyrir Bayern að missa Lewandowski
Nagelsmann fer yfir málin með Werner.
Nagelsmann fer yfir málin með Werner.
Mynd: Getty Images
Julian Nagelsmann, þjálfari RB Leipzig, hefur ítrekað mikilvægi sóknarmannsins Timo Werner fyrir Leipzig.

Werner er 24 ára gamall og hefur skorað 91 mark í 153 leikjum frá komu sinni til Leipzig sumarið 2016. Hann hefur verið sterklega orðaður við Liverpool.

„Ég held að hann sé búinn að koma að 34 mörkum á þessu tímabili. Ég vil auðvitað halda honum og það verður stórt skarð að fylla ef hann fer. Það væri eins og fyrir Bayern að missa Robert Lewandowski," segir Nagelsmann.

Talið er að Werner sé með 60 milljón evra riftunarverð í samningi sínum hjá Leipzig.

Þess má geta að Robert Lewandowski hefur skorað 43 mörk í 37 keppnisleikjum fyrir Bayern á þessari leiktíð.

Sjá einnig:
Nagelsmann opnaði sig um Werner: Þetta er hans líf
Athugasemdir
banner
banner
banner