Klukkan 17:00 tekur Þór á móti Stjörnunni í 9. umferð Bestu deildarinnar. Liðin sitja í 9. og 10. sæti deildarinnar fyrir leikinn með sex og sjö stig.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Stjarnan
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir tvær breytingar á liði sínu frá tapinu gegn Keflavík í síðsutu umferð. Fannar Daði Malmquist og Aron Ingi Magnússon koma inn fyrir þá Elvar Baldvinsson og Sigfús Fannar Gunnarsson sem taka sér sæti á bekknum. Yann Emmanuel Affi snýr þá aftur í hópinn og tekur sér sæti á bekknum. Markvörðurinn efnilegi, Lucas Vieira Thomas (2009), er á varamannabekknum hjá Þór í stað Franko Lalic sem er skráður í liðsstjórn í dag.
Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, gerir tvær breytingar frá tapinu gegn Víkingi í síðasta leik. Örvar Logi Örvarsson og Emil Atlason koma inn í byrjunarliðið fyrir þá Hauk Brink og Andra Rúnar Bjarnason. Andri Rúnar er ekki með í dag en Haukur tekur sér sæti á bekknum. Bjarki Hauksson snýr þá aftur í hópinn eftir leikbann.
Byrjunarlið Þór :
1. Aron Birkir Stefánsson (m) (f)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
7. Atli Sigurjónsson
8. Einar Freyr Halldórsson
10. Aron Ingi Magnússon
15. Kristófer Kristjánsson
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
17. Fannar Daði Malmquist Gíslason
19. Ragnar Óli Ragnarsson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
25. Christian Greko Jakobsen
Byrjunarlið Stjarnan:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
11. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
22. Emil Atlason
27. Damil Serena Dankerlui
32. Örvar Logi Örvarsson
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 9 | 8 | 1 | 0 | 29 - 5 | +24 | 25 |
| 2. KR | 9 | 7 | 1 | 1 | 33 - 20 | +13 | 22 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 9 | 5 | 0 | 4 | 18 - 17 | +1 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 12 | -1 | 11 |
| 8. KA | 8 | 3 | 1 | 4 | 9 - 10 | -1 | 10 |
| 9. Stjarnan | 9 | 2 | 1 | 6 | 15 - 21 | -6 | 7 |
| 10. Þór | 8 | 2 | 0 | 6 | 6 - 20 | -14 | 6 |
| 11. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |
| 12. ÍBV | 8 | 0 | 2 | 6 | 8 - 22 | -14 | 2 |


