Fotbolti.net
31.07.13 - 20:45
Brynjar Ingi Erluson

Andri Freyr Sveinsson lánaður frá Fram í KA (Staðfest)

Andri Freyr Sveinsson í leik með KF

Andri Freyr Sveinsson í leik með KF

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson

Fram í Pepsi-deild karla hefur lánað hinn unga og efnilega Andra Frey Sveinsson í KA sem leikur í fyrstu deildinni.
Andri Freyr, sem er fæddur árið 1994, kom til Fram frá KF árið 2011, en hann hefur æft með meistaraflokki Fram ásamt því að vera í leikmannahóp liðsins í deild og bikar.

Honum hefur þó ekki tekist að brjóta sér leið inn í liðið á þessum tveimur árum, þrátt fyrir að spila á undirbúningstímabili í Lengjubikar og æfingaleikjum.

Fram hefur nú lánað hann á Akureyri þar sem hann mun spila með KA út leiktíðina, en hann er þó ekki með leikheimild í kvöld þar sem hann hefði getað spilað gegn sínum gömlu félögum í KF. Hann verður með leikheimild er KA mætir Leikni úr Breiðholti í næstu umferð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.