31.07.13 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Derk Boerrigter til Glasgow Celtic (Staðfest)

Derk Boerrigter

Mynd: Getty Images

Derk Boerrigter

Mynd: Getty Images
Glasgow Celtic í Skotlandi hefur fest kaup á hollenska framherjanum Derk Boerrigter frá Ajax.
Boerrigter, sem er 26 ára gamall, gerði fjögurra ára samning við Celtic, en hann skoraði 12 mörk í 47 leikjum fyrir Ajax.
Hann ólst upp hjá Twente áður en hann fór til Ajax árið 2006. Hann kom svo við hjá PEC Zwolle og RKC Waalwijk áður en hann fór aftur til Ajax.
Þetta eru fjórðu kaup Neil Lennon hjá Celtic í sumar, en fyrir hefur félagið fengið þá Virgil Van Dijk, Amido Balde og Steven Mouyokolo.