Fotbolti.net
31.07.13 - 17:30
Hafliði Breiðfjörð

Halldór Ingvar í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Halldór Ingvar í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dalvík/Reynir hefur fengið markvörðinn Halldór Ingvar Guðmundsson til liðs við sig frá KF.

Halldór Ingvar verður í láni hjá Dalvík/Reyni út þetta tímabil.

Halldór, sem er fæddur árið 1992, var aðalmarkvörður KF þegar liðið komst upp úr 2. deildinni í fyrra.
Í sumar hefur hann hins vegar verið varamarkvörður í fyrstu deildinni á meðan Björn Hákon Sveinsson hefur staðið á milli stanganna.

Halldór er kominn með leikheimild með Dalvík/Reyni og getur spilað með liðinu gegn Sindra í 2. deildinni í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.