31.07.13 - 12:30
Magnús Már Einarsson
Hector Pena til ÍA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA hefur samið við spænska vinstri bakvörðinn Hector Pena Bustamante en hann hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarna daga.
Pena er fæddur árið 1984 og getur einnig spilað sem miðjumaður.
Pena er fjórði leikmaðurinn sem kemur til ÍA í júlí en áður höfðu danski varnarmaðurinn Thomas Sörensen og kantmennirnir Joshua Watt og Hafþór Ægir Vilhjálmsson samið við félagið.
Þá hafa Skagamenn lánað varnarmanninn unga Gylfa Veigar Gylfason í Kára út tímabilið en hann mun leika síðustu sjö leiki liðsins í 3. deildinni.